miðvikudagur, mars 26, 2003

Jæja - nú blaðra ég bara daglega ;) Allavega þá vildi ég bara vísa á blók þeirra sem voru í 6-U 1998 - 1999 undir slóðinni Annars er best að halda áfram að vinna og svo hringja í löggusalinn til að staðfesta! Bæjó

þriðjudagur, mars 25, 2003

Vá - hvað það er langt síðan að ég hef gert nokkuð :P Phúfff - þá er mars að verða búinn :( Hvert fer tíminn minn? Ég held að það sé e-r að stela honum, það er sá sami og er að stela pjéningunum mínum! Það er alveg ljóst að hér er eitt stórt samsæri í gangi - ég skil Davíð alveg, þetta er sko ekkert grín. Það hefur svo sem ekkert merkilegt gerst síðan ég blókti... blækti... - humm spurning hvernig á að beygja þessa nýju sögn?? Að blóka - ég blæki - þú blækir - hann blækir - við blækum...?? Ég veit ekki hvort mér finnst að svona eigi að beygja þetta. Vil frekar blóka = blóta svo að ég blóka - þú blókar - hann blókar - við blókum .... og þá ég blókaði. Já, ég held mig við það bara.
Jú - eitt hefur nú gerst alveg stórskemmtilegt. Nú skal jubilera 5 ára útskriftaramæli föstudaginn 6.júní 2003 - jibbí jibbí! Ég verð því bara að rjúka úr miðbænum út á flugvöll takk fyrir - en það er betra heldur en að ég hefði misst af þessu! Ok - tíminn er byrjaður aftur. bæjó