þriðjudagur, apríl 08, 2003

ok - best að prófa að setja inn mynd

Djöfull er ég klár!!! ;) Ég hef greinilega ekkert skárra að gera á kvöldin :P

miðvikudagur, mars 26, 2003

Jæja - nú blaðra ég bara daglega ;) Allavega þá vildi ég bara vísa á blók þeirra sem voru í 6-U 1998 - 1999 undir slóðinni Annars er best að halda áfram að vinna og svo hringja í löggusalinn til að staðfesta! Bæjó

þriðjudagur, mars 25, 2003

Vá - hvað það er langt síðan að ég hef gert nokkuð :P Phúfff - þá er mars að verða búinn :( Hvert fer tíminn minn? Ég held að það sé e-r að stela honum, það er sá sami og er að stela pjéningunum mínum! Það er alveg ljóst að hér er eitt stórt samsæri í gangi - ég skil Davíð alveg, þetta er sko ekkert grín. Það hefur svo sem ekkert merkilegt gerst síðan ég blókti... blækti... - humm spurning hvernig á að beygja þessa nýju sögn?? Að blóka - ég blæki - þú blækir - hann blækir - við blækum...?? Ég veit ekki hvort mér finnst að svona eigi að beygja þetta. Vil frekar blóka = blóta svo að ég blóka - þú blókar - hann blókar - við blókum .... og þá ég blókaði. Já, ég held mig við það bara.
Jú - eitt hefur nú gerst alveg stórskemmtilegt. Nú skal jubilera 5 ára útskriftaramæli föstudaginn 6.júní 2003 - jibbí jibbí! Ég verð því bara að rjúka úr miðbænum út á flugvöll takk fyrir - en það er betra heldur en að ég hefði misst af þessu! Ok - tíminn er byrjaður aftur. bæjó

laugardagur, desember 14, 2002

Nóbb - comment kom ekki!! Æi, Sibbi - HJÁLP?? Ég kann ekkert svona dót - en þú ert víst "frá" núna á msn svo ekki þýðir að væla í þér! Hvað á það annars að þýða - áttu ekki að sitja sveittur yfir námsbókunum? Annars er bíllinn minn kominn úr réttingu - jibbí!! Og hann er ekkert smá flottur - bara eins og spánnýr :) Spurning um að bakka á e-ð til að hafa samræmi í þessu? Nei, reyni frekar að snapa mér aftanákeyrslu ;) - þó svo að buddan hafi komið ótrúlega vel út úr þessu er ekki víst að það verði líka næst :S! Það er held ég verra að rétta afturhlera heldur en húdd! Ég verð bara að massa lakkið aðeins og þá verður bíllinn allur jafnflottur og ég rosa gella.
Svo eru þeir farnir að hafa byggingarnar opnar til miðnættis upp í HÍ - mikið var að beljan bar! Bla bla bla - segi ekkert af viti, ekki frekar en aðra daga. Ætla að drusla mér heim og troða mig út af jólaöli og smáökukum - smá forskot á sæluna!

mánudagur, desember 09, 2002

Var að prófa að setja inn svona "comment" - veit nú ekki hvort það hefur tekist. Annars er harði diskurinn farinn yfir um og tölvan því gagnslaus - rétt náði samt að bjarga glósunum mínum, hjúkkett! Vonandi bara að ég gleymdi engu - ég fer allavega og bið um chost-copy af henni áður en þeir hjá Nýherja fá hana. Ok, kíkja á hvort að commentið-dótið virki!